Ég er 3 ára ;)
Við erum Eyþór Axel,Rakel Hera og Júlía Sigrún ;)


Við erum þrjú systkyni og þetta er heimasíðan okkar.



Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 20. maí 2006. Ég var 12 merkur og 50 sentimetrar. Mamma mín heitir Sigrún Karlsdóttir (78) og er frá Húsavík og pabbi minn heitir Júlíus Stefánsson (75) og er frá Hrísey. Svo á ég 2 stórar systur sem heita Júlía Sigrún hún er 12 ára og Rakel Hera sem er 10 ára. Við búum á Húsavík.

Lilypie 6th to 18th Ticker



Ég heiti Júlía Sigrún og er 9 ára gömul skvísa, bý á Húsavik ásamt fjölskyldu minni. Ég á einn yngri bróðir og eina yngri systir.

Lilypie 6th to 18th Ticker



Ég heiti Rakel Hera og er 8 ára gömul. Ég bý á Húsavík með fjölskyldunni og ég á lítinn bróðir og stóra systir.

Lilypie 6th to 18th Ticker


Í dag hafa 430 Íslendingar nafnið Eyþór sem fyrsta nafn og 40 hafa það fyrir millinafn. Eyþór er vinsælt skírnarnafn, en u.þ.b. 38 börn undir 5 ára aldri bera það sem fyrsta nafn.

Í dag hafa 288 Íslendingar nafnið Júlía sem fyrsta nafn og 212 hafa það fyrir millinafn. Júlía er vinsælt skírnarnafn, en u.þ.b. 76 börn undir 5 ára aldri bera það sem fyrsta nafn.

Í dag hafa 733 Íslendingar nafnið Rakel sem fyrsta nafn og 143 hafa það fyrir millinafn. Rakel er vinsælt skírnarnafn, en u.þ.b. 110 börn undir 5 ára aldri bera það sem fyrsta nafn.







Hann brosir
Yndislegi sonur minn
Hann sefur, brosir og hlær
Andlitið svo fullt af forvitni og töfrum að mér
finnst heimurinn hafa verið skapaður
honum til heiðurs



Sonur minn

*Elsku yndislegi sonur minn*

Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunverulegur.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
*Ég elska þig elsku sonur minnn*
Nú og að eilífu.



Mamma er Konan

Sem kemur manni í heiminn með mikilli fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir alla þá hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.

Mamma er alltaf til staðar með útrétta hjálparhönd þegar á þarf að halda.

Þerrar tárin þegar það er leiðinlegt og gleðst með manni þegar það er gaman að vera til.

Mamma er besta kona í heimi.



BARA Í KVÖLD......
-ætla ég að halda á ykkur í fanginu og segja ykkur frá deginum
þegar þið fæddust og hvers vegna mér þykir svona vænt um ykkur...

-ætla ég að leyfa ykkur að busla og skvetta í baðinu
og ekki verða reið út af vatninu á gólfinu...

-ætla ég að leyfa ykkur að vaka lengi og
skoða stjörnurnar á himninum...

-ætla ég að kúra hjá ykkur eins lengi og þið viljið
þó að ég missi þá af uppáhaldssjónvarpsþættinum mínum...

-ætla ég að dást að ykkur og vera þakklát
fyrir að eiga gersemi eins og ykkur.

Ég hugsa til mæðra sem hafa misst börn sín
vegna veikinda eða slysa og mæðra sem dvelja á sjúkrahúsum með börnum sínum og berjast fyrir lífi þeirra.

Ég er svo heppin að eiga ykkur og bið ekki um neitt...

...nema annan dag með ykkur...

Þú ert gestur nr. 37029